Viðskipti

Áttatíu konur tóku þátt í stofnun FKA Suðurnes
Eliza Reid, forsetafrú og félagskona FKA með þeim Guðnýju Birnu og Fidu Libdeh.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
föstudaginn 3. desember 2021 kl. 17:41

Áttatíu konur tóku þátt í stofnun FKA Suðurnes

Félag kvenna í atvinnulífinu á Suðurnesjum stofnað

Rúmlega áttatíu konur tóku þátt í sögulegum stofnfundi FKA Suðurnes, nýrrar landsbyggðadeildar Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA), föstudaginn 26. nóvember síðastliðinn.

„Samfélagið er að lifna við í takt við nýja Covid-tíma og ljóst er að tækifærin eru til staðar er kemur að atvinnusköpun kvenna og með nýrri deild FKA Suðurnes er markmiðið að kortleggja þessi tækifæri á svæðinu.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Nýsköpun er mikilvæg sem aldrei fyrr fyrir heimsbyggðina sem þarf að finna leiðir til að vera í takt við nýja tíma. Þar verður að endurskoða og endurhugsa margt til að sóa ekki tækifærum eins og hugmyndum og innlögn í framtíðarplönin frá konum. Fyrir liggja sláandi staðreyndir um ólíka forgjöf er kemur að því að nýta sér jafnréttið í nýsköpun og víðar. Í þessu sambandi má nefna að kvennateymi fá örfá prósent (jafnvel í eintölu) af fjármagninu er kemur að fjármögnun í nýsköpun,“ segir í frétt frá FKA.

Fida Abu Libdeh, FKA-kona, frumkvöðull og stofnandi nýsköpunarfyrirtækisins Geosilica sem framleiðir fæðubótaefni úr kísli, fyrirtækið er metið upp á 700 milljónir og hefur hafið sölu sína á erlendum mörkuðum, og Guðný Birna Guðmundsdóttir, FKA-kona, fyrsta konan til að verða stjórnarformaður HS Veitna, bæjarfulltrúi og stjórnarformaður HS Veitna, voru í forsvari fyrir stofnun deildarinnar og nutu stuðnings frá stjórn FKA og framkvæmdastjóra FKA, Andreu Róbertsdóttur.

Andrea Róbertsdóttir, framkvæmdastjóri FKA, Anna Karen Sigurjónsdóttir, Guðný Birna Guðmundsdóttir, Eliza Reid, forsetafrú og félagskona FKA, Eydís Mary Jónsdóttir, Gunnhildur Pétursdóttir, Rakel Lind Hauksdóttir Michelsen, Fida Abu Libdeh og Sigríður Hrund Pétursdóttir, formaður FKA. Á myndina vantar: Herborgu Svönu Hjelm, Írisi Sigtryggsdóttur, Snjólaugu Jakobsdóttur og Þuríði Halldóru Aradóttur.

Meðfylgjandi myndir voru teknar á stofnfundinum.